Header Paragraph
Ný grein um langtímaviðbrögð við náttúruhamförum
Í nýju vorhefti tímaritsins Sveitastjórnarmál 2020 birtist greinin „Nýtum þá þekkingu sem er til staðar". Greinin fjallar um hvernig sveitastjórnir geta búið sig undir hamfarir.
Greinin er byggð á verkefninu Langtímaviðbrögð við náttúruhamförum sem ýmis sveitarfélög hafa haft til hliðsjónar við gerð viðbragðsáætlana síðusutu ár. Þær hamfarir sem orðið hafa frá áramótum minna á að öll samfélög geta orðið fyrir áfalli og öll sveitarfélög þurfa að vera viðbúin.