Header Paragraph

Viðburður um vistspor Íslands

Image
Eric Miller kynnir vistspor Íslands

Fimmtudaginn 12. júní stóðu Umhverfis- og auðlindafræði HÍ, Sjálfbærnistofnun HÍ og Festa - miðstöð um sjálfbærni fyrir málþingi um Vistspor Íslands í Norræna húsinu.

Upptöku af málþinginu má nálgast hér.

Málstofan fjallaði um gögn og þær greiningar sem liggja til grundvallar á mati á vistspori og framleiðni jarðarinnar auk greininga á “Earth Overshoot Day” með sérstakri áherslu á vistspor Íslands. Sérstaklega var fjallað um hvernig vistpor Íslands þróaðist frá 1961-2024 og hvað það er sem veldur því að vistspor Íslands er eitt það stærsta í heiminum. Einnig var kynning á því hvernig lönd, sveitarfélög og fyrirtæki geta nýtt sér vistsporsmælingar til að draga úr álagi á vistkerfi jarðarinnar.

Í pallborði var svo lögð áhersla á hvernig draga má úr vistspori Íslands og hvernig nýta má vistsporsmælingar til að draga úr umhverfisáhrifum.

Vistspor og mat á framleiðni jarðar (e: ecological footprint and biocapacity accounts) eru mælikvarðar sem notaðir eru til að meta umhverfislega sjálfbærni þar sem þeir sýna álag neyslu mannsins á umhverfi og auðlindir. Mælikvarðarnir eru t.d. notaðir til að sýna hvenær íbúar heims fara á „yfirdrátt“ miðað við framleiðni jarðarinnar með svokölluðum „Earth Overshoot Day“. Sjá frekari upplýsingar um vistsporsmælingar hér: https://www.footprintnetwork.org/.../ecological-footprint/ hér: https://www.footprintnetwork.org/footprint-data-foundation/ og hér: https://www.footprintpartnership.net/

Námsbraut í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands og York-háskóli í Toronto Kanada með styrk frá hinu kanadíska Social Sciences and Humanities Research Council safna gögnum og meta vistspor fyrir öll lönd í heiminum í samvinnu við Global Footprint Network.

Dagskrá:

Fyrirlesarar:
Brynhildur Davíðsdóttir, Háskóli Íslands, og Peter Victor, York University
Eric Miller, York University
Peri Dworatzek, York University
Kiona Lo, York University

Pallborð:
Hrönn Hrafnsdóttir, Reykjavíkurborg; Elva Rakel Jónsdóttir, Festu; Eric Miller, York University; Björn Barkarson, Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið; Sigurður Eyberg Jóhannesson.

Fundarstjóri var Hafdís Hanna Ægisdóttir, Sjálfbærnistofnun HÍ