Header Paragraph

Útgáfa verkfærakistu um sjálfbærni í styrkjasókn

Image

Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Rannsóknaþjónusta Félagsvísindasviðs gefa í dag út verkfærakistu um sjálfbærni í styrkjasókn.

Verkfærakistan er hagnýtt stuðningstæki fyrir rannsakendur á Félagsvísindasviði sem sækja um styrki í innlenda og erlenda samkeppnissjóði þar sem sjálfbærni og heimsmarkmiðin eru mikilvægir þættir. Verkfærakistunni er ætlað að efla sjálfbærni og styrkjasókn með því að auðvelda rannsakendum að bera kennsl á tækifæri til að innleiða sjálfbærnivídd í rannsóknir sínar. Í henni eru einnig að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að draga fram sjálfbærniáhrif rannsóknar þegar sótt er um styrki.

Nálgast má verkfærakistuna hér.