Header Paragraph

Útgáfa verkfærakistu um sjálfbærni í styrkjasókn

Image

Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Rannsóknaþjónusta Félagsvísindasviðs gefa í dag út verkfærakistu um sjálfbærni í styrkjasókn.

Verkfærakistan er hagnýtt stuðningstæki fyrir rannsakendur á Félagsvísindasviði sem sækja um styrki í innlenda og erlenda samkeppnissjóði þar sem sjálfbærni og heimsmarkmiðin eru mikilvægir þættir. Sjálfbærni hefur orðið lykilþáttur í rannsóknum þvert á deildir og fræðasvið og sífellt fleiri samkeppnissjóðir og styrkveitendur, bæði innlendir og erlendir, gera kröfu um að sjálfbærni sé hluti af rannsóknaráherslum. Verkfærakistunni er ætlað að efla sjálfbærni og styrkjasókn með því að auðvelda rannsakendum að bera kennsl á tækifæri til að innleiða sjálfbærnivídd í rannsóknir sínar. Í henni eru einnig að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að draga fram sjálfbærniáhrif rannsóknar þegar sótt er um styrki.

Sjálfbærnistofnun HÍ hlaut styrk úr Aldarafmælissjóði HÍ fyrir gerð verkfærakistunnar, sem er unnin fyrir Félagsvísindasvið HÍ og talar því til rannsakenda í félagsvísindum, en þó nýtist hún einnig í víðara samhengi, bæði fræðafólki, stofnunum og stoðþjónustu.

Í verkfærakistunni má finna hagnýtar leiðbeiningar um hvernig tengja megi rannsóknir við sjálfbærni og heimsmarkmiðin, dæmi um samkeppnissjóði sem rannsakendur innan HÍ sækja töluvert í og hvernig þeir leggja áherslu á sjálfbærni í sínum köllum. Einnig eru þar reynslusögur frá fræðafólki sem hefur gengið vel að samþætta sjálfbærni í sínum rannsóknum og styrksumsóknum. Verkfærakistan inniheldur einnig gátlista sem hjálpar rannsakendum að greina sjálfbærniþætti í eigin verkefnum og sýna þá markvisst í styrkumsóknum. Auk þess er bent á önnur gagnleg verkfæri.

Með verkfærakistunni er því leitast til að styðja rannsakendur til að móta rannsóknaráherslur sem vinna að sjálfbærni, sem mætir ekki aðeins kröfum styrkveitenda, heldur eykur jafnframt samfélagslegt mikilvægi og sýnileika rannsókna, styrkir alþjóðlegt og innlent samstarf og stuðlar að betri nýtingu þekkingar við lausn áskorana samtímans.

Nálgast má verkfærakistuna hér.