Síðasta staðnámsvika ARCADE námskeiðsins á Grænlandi
Í síðustu viku fór þriðja og síðasta staðnámsvika Arcade námskeiðsins fram í Nuuk, Grænlandi. Þar kom saman öflugur hópur nemenda úr ýmsum fræðigreinum sem eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á málefnum norðurslóða.
ARCADE er þverfaglegt námskeið sem að byggir á að styðja við nýsköpun og að tengja saman rannsóknir og sérhæfingu ólíkra fræðasviða til þess að bregðast við þeim margvíslegu áskorunum sem steðja að norðurslóðum vegna loftslagsbreytinga.
Í Nuuk fengu nemendur meðal annars kynningu frá Naaja Nathanielsen, fjármála- og jafnréttisráðherra Grænlands og Söru Olsvig, formanni heimskautaráðs Inúíta. Auk þess heimsóttu þau aðalsræðismann íslands og dönsku herstjórnina í Nuuk (e. the Arctic Command). Nemendurnir tóku þátt í fróðlegum fyrirlestrum frá fræðafólki í Ilisimatusarfik háskólanum og fóru í dagsferð á bati til Qooqqut í Nuuk firðinum.
Næsta stopp verður á Arctic Circle í október þar sem slegið verður botninn í 10 mánaða námskeið.
Að námskeiðinu koma Rannsóknasetur um norðurslóðir og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Ilisimatusarfik háskólann í Nuuk, UiT Norges arktiske universitet í Tromsø, The Arctic Initiative við Kennedy skólann við Harvard háskóla og Hringborð norðurslóða, Arctic Circle.
Nánari upplýsingar um ARCADE má finna á heimasíðu námskeiðsins.
Myndir frá Grænlandsferðinni
![Fyrirlestur fyrir ARCADE nema í Nuuk](/sites/ssf.hi.is/files/styles/original_small/public/2023-09/img_7686.jpg?itok=Xmup5oKb 479w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_medium/public/2023-09/img_7686.jpg?itok=jMuOhCia 480w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_large/public/2023-09/img_7686.jpg?itok=x0WmqFor 768w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_extra_large/public/2023-09/img_7686.jpg?itok=dwS-JHIs 1024w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_full/public/2023-09/img_7686.jpg?itok=GeyNwNdu 1440w)
![Bátsferð á Grænlandi](/sites/ssf.hi.is/files/styles/original_small/public/2023-09/img_7782.jpg?itok=_Oj1KaJN 479w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_medium/public/2023-09/img_7782.jpg?itok=S5C4v3TE 480w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_large/public/2023-09/img_7782.jpg?itok=M6oUNNKu 768w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_extra_large/public/2023-09/img_7782.jpg?itok=KpGrrXCT 1024w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_full/public/2023-09/img_7782.jpg?itok=RXqAxhnr 1440w)
![Dansað á steini í Grænlandi](/sites/ssf.hi.is/files/styles/original_small/public/2023-09/aeb50d68-13fe-4ccc-9bdf-74206812c258.jpeg?itok=7dOITZGm 479w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_medium/public/2023-09/aeb50d68-13fe-4ccc-9bdf-74206812c258.jpeg?itok=58KNEnnW 480w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_large/public/2023-09/aeb50d68-13fe-4ccc-9bdf-74206812c258.jpeg?itok=Q04hRlTg 768w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_extra_large/public/2023-09/aeb50d68-13fe-4ccc-9bdf-74206812c258.jpeg?itok=OkzVvCaf 1024w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_full/public/2023-09/aeb50d68-13fe-4ccc-9bdf-74206812c258.jpeg?itok=tkZkibc4 1440w)
![ARCADE nemendahópurinn á Grænlandi](/sites/ssf.hi.is/files/styles/original_small/public/2023-09/img_7807.jpg?itok=xeOdT6Pe 479w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_medium/public/2023-09/img_7807.jpg?itok=ZwcTJskw 480w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_large/public/2023-09/img_7807.jpg?itok=QohjscpJ 768w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_extra_large/public/2023-09/img_7807.jpg?itok=N451SJ53 1024w, /sites/ssf.hi.is/files/styles/original_full/public/2023-09/img_7807.jpg?itok=xRjnQBsy 1440w)