Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands var meðal samstarfsaðila í verkefninu Tilraunaborgir: Þrætt í gegnum þrengslin (e. Pilot Cities: Piercing through the gridlocks), sem nú er lokið og hefur skilað áhugaverðum niðurstöðum um hegðun og sýn borgarbúa á samgöngum og úrgangsmálum. Verkefnið var unnið í samstarfi Reykjavíkurborgar og þverfræðilegs hóps innan Háskóla Íslands, sem samanstóð meðal annars af Sjálfbærnistofnun og Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ. Í verkefninu leiddi Sjálfbærnistofnun vinnupakka 6, Samband: miðlun, samskipti og þekkingarskipti, í nánu samstarfi við Reykjavíkurborg.
Verkefnið gekk út á að kanna venjur og hindranir íbúa og fyrirtækja í borginni í samgöngu- og úrgangsmálum með það fyrir augum að draga hraðar úr losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við markmið Reykjavíkurborgar um kolefnishlutleysi fyrir árið 2030.
Niðurstöður úr verkefninu voru nýlega kynntar í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar, en þær varpa meðal annars ljósi á ferðavenjur og úrgangsflokkun Reykvíkinga. Þær sýna að þótt einkabíllinn sé enn langalgengasti ferðamátinn á höfuðborgarsvæðinu segist um þriðjungur þeirra sem aka til vinnu vilja skipta yfir í aðra ferðamáta, svo sem almenningssamgöngur, hjólreiðar eða rafknúin létt farartæki. Þá flokka yfir 90% svarenda reglulega pappír, plast og lífrænan úrgang. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að bætt aðgengi og innviðir séu lykilatriði þegar kemur að því að auðvelda fólki að tileinka sér sjálfbærari venjur.
Gaman er að segja frá því að niðurstöður verkefnisins hafa vakið töluverða athygli og verið teknar upp í fjölmiðlum. Auk umfjöllunar á vef Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar fjölluðu bæði mbl.is og Vísir um niðurstöðurnar. mbl.is vakti meðal annars athygli á því að þriðjungur væri tilbúinn að skilja bílinn eftir heima, og Vísir fjallaði einnig um hvaða ferðamáta fólk vildi nýta og hvaða hindranir stæðu helst í vegi fyrir breytingum.
Nánari upplýsingar um verkefnið og niðurstöður þess má finna í lokaskýrslu verkefnisins, sem unnin var af Sjálfbærnistofnun. Tilraunaborgir: Þrætt í gegnum þrengslin var fjármagnað af NetZeroCities.