Það er okkur mikill heiður að bjóða til opins málþings með Johan Rockström, forstjóra Potsdam-stofnunarinnar um rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga (PIK) og einum fremsta vísindamanni heims á sviði sjálfbærni og loftslagsmála. Á málþinginu mun Rockström fara yfir ástand náttúru og loftslags út frá þeim upplýsingum sem við höfum í dag.
Málþingið fer fram á ensku föstudaginn 9. október kl. 9.00-10.30 í Háskólabíói.
Vinsamlegast skráið ykkur á málþingið hér: https://forms.cloud.microsoft/e/MysuFrcYs6
Eftir um 11.000 ára tímabil þar sem loftslag jarðar hefur verið óvenju stöðugt stendur mannkynið nú frammi fyrir margvíslegum og samtengdum umhverfisbreytingum. Þær hafa áhrif á náttúru og samfélög, heilsu og velferð fólks og efnahagslegan stöðugleika, auk þess að geta raskað stöðugleika jarðkerfisins sjálfs.
Í erindi sínu mun Rockström fara yfir nýjustu vísindalegu þekkingu á stöðu jarðar og þeirri áhættu sem fylgir röskun á loftslagi og náttúrulegum kerfum hennar. Hann mun meðal annars fjalla um þolmörk jarðar (e. Planetary Boundaries), vendipunkta í jarðkerfinu og hvað þessi þekking þýðir fyrir skilning okkar á sjálfbærni og sjálfbærri þróun.
Vísindin sýna að mannkynið hefur þegar farið út fyrir sjö af níu þolmörkum jarðar. Enn er þó svigrúm til að snúa þróuninni við og færa samfélög okkar aftur innan öruggra marka en til þess þarf hraðar og umfangsmiklar breytingar í þeim samfélags- og atvinnukerfum sem hafa mest áhrif á jörðina.
Dagskrá
Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ og fundarstjóri opnar viðburðinn
Hugvekja: Andri Snær Magnason, rithöfundur
Erindi Johan Rockström um stöðu loftslags og náttúru, þolmörk jarðar og þær kerfisbreytingar sem þarf til að færa samfélög okkar aftur innan öruggra marka jarðar.
Samtal Johan Rockström og Silju Báru Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, undir stjórn Hafdísar Hönnu Ægisdóttur.
Málþingið er haldið af Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Alþjóðamálastofnun HÍ, námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ, Líf- og umhverfisvísindadeildar HÍ, Jarðvísindadeildar HÍ, Jarðvísindastofnunar HÍ og umhverfis-, loftslags- og orkuráðuneytið. Málþingið er hluti af viðburðaröðinni Loftslagsmál og rannsóknir.
Ekki verður streymt frá viðburðinum en erindi Rockström verður tekið upp og verður gert aðgengilegt á vef Sjálfbærnistofnunar, www.sshi.hi.is
Um fyrirlesara
Johan Rockström er forstjóri Potsdam-stofnunarinnar um rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga (Potsdam Institute for Climate Impact Research), prófessor í jarðkerfisvísindum við Háskólann í Potsdam og prófessor í vatnakerfum og alþjóðlegri sjálfbærni við Stokkhólmsháskóla. Hann er einn þekktasti vísindamaður heims á sviði sjálfbærni og loftslagsmála og leiddi m.a. þróun rammans um þolmörk Jarðar (Planetary Boundaries), sem tilgreinir inna hvaða marka mannkyn þarf að halda sig til að vernda stöðugleika náttúrulegra kerfa Jarðar og skapa góð skilyrði fyrir framtíðina.
Um viðburðaröðina
Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, varpar ljósi á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.
Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.