Header Paragraph

Málþing: Sjálfbærni, moldin og landið 21. maí

Image
Sjálfbærni, moldin og landið málþing

Ungir umhverfissinnar, Landvernd, Sjálfbærnistofnun HÍ og Norræna húsið bjóða ykkur velkomin á málþing um jarðveg og sjálfbæra nýtingu lands í Norræna húsinu, þriðjudaginn 21. maí, kl. 16:00. 

Mold er undirstaða fæðuframleiðslu jarðarbúa, og er mikilvægur þáttur í fjölbreytni lífríkisins og kolefnishringrás jarðar. Jarðvegur hefur gríðarlega mikil áhrif á styrk gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu. Ástand vistkerfa jarðar er víða mjög bágborið með stöðugt minnkandi líffræðilegri fjölbreytni og losun á CO2. Á fáum svæðum jarðar er ástandið jafn slæmt og á Íslandi þar sem landnýting er víða langt því frá að geta talist sjálfbær. Sjálfbær landnýting er nauðsynleg til að koma í veg fyrir hnignun vistkerfa og bætir möguleika á endurheimt þeirra – sem jafnframt stuðlar að bindingu kolefnis úr andrúmsloftinu.

Á málþinginu verður m.a. vikið að mikilvægi moldarinnar sem og nýrri hugsun er varðar sjálfbæra landnýtingu hérlendis, en einnig hindrunum og þróun reglugerða sem ætlað er að færa stjórnsýslu landnýtingar til nútímans. Málþingið felst í stuttum erindum og pallborðsumræðum að þeim loknum. Málþingið er haldið í tilefni viðurkenningar Hagþenkis á bókinni “Mold ert þú” og áskorana sem felast í því að tryggja sjálfbæra landnýtingu. 

Erindi:

Stutt innleiðing – Ólafur Arnalds

Sjálfbærni – barátta Landverndar í hálfa öld – Þorgerður M. Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar

Moldin og ástandið – Fífa Jónsdóttir, fulltrúi stjórnar Ungra umhverfissinna

Moldin og loftslagið – Eyþór Eðvaldsson, baráttumaður og ráðgjafi

Viðmið og leiðbeiningar – Björn Barkarson, skrifstofustjóri um sjálfbæra landnýtingu, sjálfbærni, Matvælaráðuneytið.

Málþingssstjóri: Heiðar Ingi Svansson, útgefandi.

Pallborð:

Matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (óstaðfest)

Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðukona Sjálbærnistofnunar HÍ

Bryndís Marteinsdóttir, sviðstóri sjálbærrar landnýtingar, Land og Skógur

Eyþór Eðvaldsson, ráðgjafi

Árni Bragason, fyrrverandi landgræðslustjóri

Ólafur Arnalds, höfundur “Mold ert þú”.

Pallborðsstjóri: Auður Önnu Magnúsdóttir, forstöðukona Kvenréttindafélags Íslands