Make sense auglýsing

Lars Rademacher, prófessor við Darmstadt University of Applied Sciences í Þýskalandi, kynnir rannsóknir sínar á sviði sjálfbærni og menntunar í tengslum við Innri þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna (Inner Development Goals).

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Öndvegisrannsóknasetursins Frelsi til merkingarsköpunar og Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands í stofu 311 í Árnagarði, fimmtudaginn 8. október kl. 15:00.

Um fyrirlesarann

Lars Rademacher er prófessor í fyrirtækja- og sjálfbærnisamskiptum við Tækniháskólann í Darmstadt og veitir doktorsnámssetri hans í sjálfbærnivísindum forstöðu. Rannsóknir hans fjalla um siðfræði samskipta, samfélagsábyrgð fyrirtækja og hlutverk miðlunar í samfélagslegum og vistfræðilegum breytingum. Hann var meðritstjóri bókanna CSR Communication in the Media (2023) og Nachhaltigkeit in der Medienkommunikation (2025). Nýleg rit hans fjalla um aðstæðubundna kenningu um samskipti í krísum og hvernig umbreytandi nám getur búið fagfólk í samskiptum og miðlun undir störf sín (bæði frá 2026).

Meira en summa hlutanna: Samþætting innri og ytri umbreytingar í háskólamenntun

Hvernig getur háskólamenntun búið nemendur undir að skilja áskoranir sjálfbærni og jafnframt gert þeim kleift að stuðla að umbreytingum? Í fyrirlestrinum er kynnt samanburðargreining á hæfnirömmum í námi við sjö evrópska háskóla. Skoðað er hvernig þeir taka mið af innri færni samhliða tæknilegri og faglegri hæfni.

Með hliðsjón af líkaninu um innri og ytri umbreytingu (Inner-Outer Transformation Model) og menntunartrénu (Education Tree) er kannað hvernig rammar á borð við markmið um innri þroska (Inner Development Goals, IDG) geta tengt saman vitræna, tilfinningalega og tengslamiðaða þætti náms. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi reynslumiðaðs náms, þroska í átt að aukinni dýpt og flækjustigi í hugsun, sálfélagslega öruggs námsumhverfis og námsmats sem tekur mið af námsferlinu.

Í fyrirlestrinum er rætt hvernig samþætta megi innri þroska kjarnanum í háskólamenntun, í stað þess að líta á hann sem viðbót eða aðskilinn námsþátt, og hvernig slík samþætting getur eflt nemendur til að verða virkir þátttakendur í umbreytingum í þágu sjálfbærni.

Share