Komið er að fjórða viðburðinum í viðburðaröðinni Loftslagsmál og rannsóknir.
Að þessu sinni mun Dr. Bjarni Már Magnússon, lögmaður og fulltrúi í loftslagsráði, fjalla um skyldur Ísland í samhengi við ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins um skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga. Bjarni Már vann nýlega álitsgerð um þetta efni fyrir loftslagsráð, sjá hér: https://loftslagsrad.is/skyldur-rikja-vegna-loftslagsbreytinga/
Fundarstjóri er Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands
Viðburðurinn fer fram á Teams kl. 12.00-13.00 miðvikudaginn 9. september.
Hlekkur á fjarfund:
Join: https://teams.microsoft.com/meet/358689745029241?p=t4UnEaZQBCRFrwdHZN
Meeting ID: 358 689 745 029 241
Passcode: uc7m5eq3
Um viðburðaröðina
Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, varpar ljósi á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.
Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.