Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð við Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, setur fókus á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf á að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.
Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og á milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.
Fyrsti viðburðurinn fer fram föstudaginn 6. mars kl. 13–15 í Auðarsal í Veröld, HÍ. Streymt verður frá viðburðinum.
Dagskrá:
Setning málþings, Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ
Ávarp, Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri Skrifstofu loftslagsmála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
Erindi:
- Hugmyndin um loftslagssetur - Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ
- Loftslagsbreytingar á Íslandi, nokkrar afleiðingar, þekkingargöt og rannsóknaþörf - Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild HÍ og Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands
- Loftslagsbreytingar, líffræðileg fjölbreytni og landvistkerfi - Bryndís Marteinsdóttir, sviðstjóri sviðs rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi
- Ímyndunarafl gegn loftslagsvá? Um framsýni, samfélagsleg gildi og sjálfsmyndir - Bergsveinn Þórsson, dósent við Háskólann á Bifröst
Pallborðsumræður fyrirlesara.
Fundarstjóri: Sæunn Stefánsdóttir, sviðstjóri þróunarsviðs HÍ.
Öll velkomin.