HÍ og heimsmarkmiðin - Áskoranir í náttúruvernd á Íslandi
Háskóli Íslands, í samvinnu við Sjálfbærnistofnun HÍ, heldur áfram með viðburðaröð um brýnustu verkefni og áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Viðburðaröðin er haldin í samstarfi við forsætisráðuneytið.
Í þetta sinn er sjónum beint að heimsmarkmiði 15 um líf á landi sem fjallar m.a. um náttúruvernd, mikilvægi þess að vernda og endurheimta vistkerfi og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni.
Dagsetning: 5. febrúar
Tími: 12:00-13:30. Boðið er upp kaffiveitingar eftir viðburðinn.
Staðsetning: Hátíðasalur Háskóla Íslands
Aðgangur: Ókeypis
Dagskrá:
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, opnar viðburðinn.
Tómas Grétar Gunnarsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurlandi, flytur erindið „Áskoranir í náttúruvernd á Íslandi og á heimsvísu.“
Pallborð:
Bryndís Marteinsdóttir, sviðstjóri hjá Landi og skógi
Skúli Skúlason, prófessor við Háskólann á Hólum, sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og formaður stjórnar BIODICE
Stefán Gíslason, umhverfisráðgjafi, stofnandi og eigandi UMÍS ehf. Environice
Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ, eiga samtal um náttúruvernd á Íslandi, endurheimt vistkerfa og líffræðilega fjölbreytni.
Fundarstjóri er Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ.
Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Um viðburðarröðina:
Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa samþykkt að innleiða sautján heimsmarkmið sem takast á við stærstu verkefni samtímans. Mikilvægt er að sérfræðiþekking og rannsóknir nýtist til lausnar á þeim viðamiklu verkefnum sem heimsmarkmiðin lýsa og einfaldi samfélögum að takast á við víðtækar áskoranir.
Eitt heimsmarkmið verður tekið fyrir í hverri viðburðalotu þar sem öflugum fræðimönnum, frá öllum fræðasviðum Háskóla Íslands, verður teflt fram til að kryfja og ræða markmiðin, vandamálin og áskoranirnar sem þeim tengjast frá sem flestum hliðum. Háskóli Íslands einsetur sér að þekkingarsköpun og rannsóknir við skólann hafi víðtæk áhrif.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þau fela í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf.
Nánari upplýsingar um fyrri viðburði í viðburðarröðinni má finna á https://www.hi.is/haskolinn/haskolinn_og_heimsmarkmidin
Nýtt hlaðvarp, HÍ og heimsmarkmiðin, er komið út samhliða viðburðaröðinni. Hægt er að hlusta hér: https://soundcloud.com/sjalfbaernistofnun-hi