heimsdagur hafsins

Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins (e. World Ocean Day) til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Af því tilefni standa utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi sem tileinkað er hafinu mánudaginn 8. júní kl. 13.00 - 15.30 í Björtuloftum í Hörpu. Boðið verður upp á léttan hádegisverð frá kl. 12.30.

Á málþinginu verður fjallað um stöðu og framtíð hafsins á tímum aukinna alþjóðlegra áskorana, þar sem tengsl hafsins við loftslag, líffræðilega fjölbreytni, auðlindanýtingu og alþjóðlegt samstarf verða sífellt skýrari. Tvö meginþemu verða til umfjöllunar á málþinginu. Annars vegar verður farið yfir málefni hafsins á alþjóðavettvangi. Hins vegar verður fjallað um mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki.

Hafið hefur ávallt verið undirstaða íslensks samfélags og efnahags. Íslendingar hafa því  um áratugaskeið lagt áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda hafsins, verndun hafsvæða og réttindi strandríkja. Á sama tíma hafa alþjóðlegir samningar og samstarf um málefni hafsins aldrei skipt meira máli en nú.

Dagsetningin hefur sérstaka skírskotun hér á landi þar sem hún fellur nærri íslenska Sjómannadeginum, sem í ár verður haldinn sunnudaginn 7. júní. 

Hámarksfjölda skráninga hefur verið náð og því hefur verið lokað fyrir skráningu í sal. Við bendum á að viðburðinum verður streymt á https://embed.wowza.com/hosted/8d57e38b-2e0c-4eb5-b18f-98a82a1dc5ff/j6knv1bs 

 

Dagskrá:

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, flytur ávarp og opnar viðburðinn

Málefni hafsins á alþjóðavettvangi:

- Innleiðing um málefni hafsins á alþjóðavettvangi - Matthías G. Pálsson, aðalsamningamaður fiskveiðisamninga hjá utanríkisráðuneytinu

- Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu náttúru og minjaverndar hjá umhverfis- orku og loftslagsráðuneytinu og Hallveig Ólafsdóttir, starfandi skrifstofustjóri á skrifstofu auðlinda hjá atvinnuvegaráðuneytinu, munu í kjölfarið flytja stutt erindi um málefni hafsins á alþjóðavettvangi ásamt Lísu Anne Libungan, fiskifræðingi hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Verndun hafsins og sjálfbær nýting þess:

- Hugvekja frá Þór Ásgeirssyni, forstöðumanni Sjávarútvegsskóla GRÓ

- Hafið og æskan - Matthea Katrín Matthíasdóttir og Ellert Orri Ínuson, nemendur úr 10. bekk í Árbæjarskóla kynna sjónarmið ungs fólks um hafið og verkefni um það sem verða til sýnis á viðburðinum

- Staða Íslands í verndun og sjálfbærri nýtingu hafsins - Hjalti Jón Guðmundsson, lögfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu auðlinda í atvinnuvegaráðuneytinu og Björn Helgi Barkarson, skrifstofustjóri á skrifstofu náttúru og minjaverndar hjá umhverfis- orku og loftslagsráðuneytinu.

- Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknarstofnunar, Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, verndunarlíffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, og Alexandra Leeper, framkvæmdarstjóri Sjávarklasans, flytja stutt erindi um verndun hafsins og sjálfbæra nýtingu þess, auk þess sem Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri á skrifstofu loftslagsmála í umhverfis- orku og loftslagsráðuneytinu, fjallar um áhrif breytinga veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) á þessi mál.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur lokaorð

Fundarstjóri er Stefán Jón Hafstein.

Share