Heilsa og loftslagsmál 10. júní

Þriðji viðburður í viðburðaröð Háskóla Íslands og Sjálfbærnistofnunar skólans, „Loftslagsmál og rannsóknir“, fer fram á TEAMS miðvikudaginn 10. júní nk. frá kl. 12.00–13.00.

Að þessu sinni munum við fjalla um heilsu og loftslagsmál.

Tveir sérfræðingar munu halda erindi: 

Hjalti Már Björnsson, formaður félags lækna gegn umhverfisvá, heldur erindið "Heilsa og loftslagsmál á norðlægum slóðum"

Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ, heldur erindið "Ljúffengur matur, lýðheilsa og loftslagsmál: Er ekki kominn tími til að tengjast?"

Fundarstjóri: Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands

Hlekkur á fjarfund: https://teams.microsoft.com/meet/347616223340404?p=U3Euednjg63h3YIJKj

Um viðburðaröðina

Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð við Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, setur fókus á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf á að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.

Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og á milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.

Share