Header Paragraph

HÍ og heimsmarkmiðin: Hvernig mælum við hagvöxt og hagsæld?

Image

Háskóli Íslands, í samvinnu við Sjálfbærnistofnun HÍ, heldur áfram með viðburðaröð um brýnustu verkefni og áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Viðburðaröðin er haldin í samstarfi við forsætisráðuneytið.

Í þetta sinn er sjónum beint að heimsmarkmiði 8 um góða atvinnu og hagvöxt sem fjallar m.a. um hvernig hægt sé að stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla.

Dagsetning: Fimmtudaginn 5. júní
Tími: 12:00-13:30. Boðið er upp á kaffiveitingar eftir viðburðinn.
Staðsetning: Hátíðasalur Háskóla Íslands
Aðgangur: Ókeypis

Viðburðinn verður einnig í streymi.

Dagskrá:

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, opnar viðburðinn.

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði, flytur erindið „Hagsæld og hagvöxtur - hvernig mælum við velferð?“

Pallborð verður tilkynnt síðar

Viðburðinum lýkur með samtali Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Hafdísar Hönnu Ægisdóttur forstöðumanni Sjálfbærnistofnunar HÍ.

Fundarstjóri er Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ.

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Um viðburðarröðina:

Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa samþykkt að innleiða sautján heimsmarkmið sem takast á við stærstu verkefni samtímans. Mikilvægt er að sérfræðiþekking og rannsóknir nýtist til lausnar á þeim viðamiklu verkefnum sem heimsmarkmiðin lýsa og einfaldi samfélögum að takast á við víðtækar áskoranir.

Eitt heimsmarkmið verður tekið fyrir í hverri viðburðalotu þar sem öflugum fræðimönnum, frá öllum fræðasviðum Háskóla Íslands, verður teflt fram til að kryfja og ræða markmiðin, vandamálin og áskoranirnar sem þeim tengjast frá sem flestum hliðum. Háskóli Íslands einsetur sér að þekkingarsköpun og rannsóknir við skólann hafi víðtæk áhrif.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þau fela í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf.

Nánari upplýsingar um fyrri viðburði í viðburðarröðinni má finna á https://www.hi.is/haskolinn/haskolinn_og_heimsmarkmidin

Nýtt hlaðvarp, HÍ og heimsmarkmiðin, er komið út samhliða viðburðaröðinni. Hægt er að hlusta hér: https://soundcloud.com/sjalfbaernistofnun-hi