Yfirlit yfir sjálbærniþing

Sjálfbærniþing Háskóla Íslands fór fram 22. apríl síðastliðinn, í samstarfi sjálfbærninefndar HÍ og Sjálfbærnistofnunar HÍ. Þingið fékk styrk úr Aldarafmælissjóði HÍ og markaði það mikilvægt skref í áframhaldandi stefnumótun skólans á sviði sjálfbærni.

Jón Geir Pétursson, formaður sjálfbærninefndar, setti þingið og Ragna Benedikta Garðsdóttir, aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis, kynnti sýn Háskóla Íslands á sjálfbærni. Í framhaldinu fluttu Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, og Guðmundur Steingrímsson, doktorsnemi við HÍ, hugvekju um viðfangsefnið. Lára Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði, fór yfir hvernig sjálfbærni var samþætt í stefnu HÍ26, og Þór Hauksson, gæða- og stefnustjóri, kynnti drög að grænbók HÍ31.

Um 50 þátttakendur tóku í kjölfarið þátt í vinnustofu þar sem þeir ræddu hvernig sjálfbærni birtist í drögum að grænbók stefnu HÍ31 og hvernig þeir telja stefnuna eiga að vera með tilliti til sjálfbærni. Þátttakendur komu ekki einvörðu úr HÍ heldur líka úr ýmsum áttum samfélagsins þar sem mikilvægt þótti að fá raddir sem flestra því stefna Háskóla Íslands varðar fleiri en starfsfólk og nemendur HÍ. Umræður voru líflegar og uppbyggilegar og var skýr áhersla á að styrkja hlutverk sjálfbærni í allri starfsemi HÍ.

Í lok vinnustofunnar tóku Eva Harðardóttir, lektor við deild menntunar og margbreytileika, Fanney Karlsdóttir, verkefnisstjóri Aurora við HÍ, og Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Environice, saman helstu atriði úr vinnustofunni og hvöttu stefnumótunarteymið til dáða.

Sjálfbærnistofnun tók saman helstu niðurstöður úr vinnustofunni eftir þingið. Í stuttu máli kalla niðurstöðurnar eftir því að sjálfbærni eigi að vera raunverulegur kjarni í starfsemi Háskóla Íslands, ekki aukaatriði heldur grundvöllur ákvarðana í námi, kennslu, rannsóknum, rekstri og stjórnun. Jafnframt var gagnrýnt að í núverandi drögum að grænbók skorti skýr markmið, ábyrgð og metnað, og kallað er eftir skýrari forystu, þverfaglegri samþættingu og því að HÍ taki skýrari afstöðu og sé leiðandi á sviði sjálfbærni í samfélaginu.

Eftir þingið og samantektina á vinnustofunni er ljóst að mikill vilji er til þess að sjálfbærni sé rauður þráður í stefnu HÍ. Sjálfbærnistofnun þakkar þátttakendum kærlega fyrir öll þeirra innlegg og vonar að niðurstöðurnar nýtist fyrir áframhaldandi stefnumótun með sjálfbærni að leiðarljósi.

 

Myndir frá Sjálfbærniþingi 22. apríl
Share